LEITIR.IS OG ISLAND.IS

Líkt og mörg ykkar væntanlega vitið verða breytingar á innskráningarþjónustu island.is 1. september næstkomandi:

• Íslykill hættir

• Eldri innskráningarþjónusta Ísland.is lokar („Rafræn skilríki/Íslykill“ á Leitir.is)

Búið er að setja upp nýja tengingu til að island.is tali við leitir.is. Innskráningin virkar með smá hiksti en í sekúndubrot birtist á skjáinn „Þú hefur verið útskráður – Halda áfram“.  Ekki er hægt að bregðast við þessum skilaboðum og innskráningin virkar samt sem áður vel.

Unnið er að lagfæringum.