Vegna framkvæmda (gólfefnaskipti) verður Bóka- og héraðsskjalasafnið á Gránugötu lokað frá og með mánudeginum 2. nóvember. Reynum að opna aftur við fyrsta mögulega tækifæri. Nánar auglýst síðar. Minnum á að Bókasafnið, Ólafsfirði er opið frá kl. 13.00-17.00. Engin gjöld vegna vanskila verða reiknuð á meðan á framkvæmdunum stendur. Alltaf er hægt að ná í okkur á fésbókinni, https://www.facebook.com/BokasafnFjallabyggdar
eða í síma 4649120- 4649128 og/eða senda tölvupóst á bokasafn@fjallabyggd.is eða hronn@fjallabyggd.is.
Þar sem jólabækurnar eru byrjaðar að streyma inn bjóðum við upp á pantanir á bókum, hægt er að sjá nýjustu titlana á heimasíðu bókasafnsins https://bokasafn.fjallabyggd.is/
Biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og ekki hika við að hafa samband.
Hlökkum til að taka á móti ykkur að framkvæmdum loknum
Gránugötu 24 | 580 Siglufirði Bylgjubyggð 2b | 625 Ólafsfirði Netföng: info@fjallabyggd.is / bokasafn@fjallabyggd.is |
Opnunartími frá 1. september LOKAÐ UM HELGAR Starfsfólk |
Lestur er bestur